NONNI SPRENGJA

hugsunarheimur Nonnalings - Johnny's official place in cyberspace -

17.05.2006 02:16:12 / nonni

TAKK OG BLESS......

Fyrsta mál á dagskrá: Þúsund þakkir fyrir okkur á brúðkaupsdaginn, kæru ættingjar og vinir. Myndir hér: http://public.fotki.com/begga10/wedding/

 

 

Annað mál á dagskrá: Streching across 54 acres of white sandy Caribbean shores in the South of Martinique, this village is situated in the middle of a coconut palm grove among beatiful hibiscus and bougainvilleas. You´ll discover colorful bungalows scattered througout lush tropical gardens.

 

Whether you´re scuba diving among the exotic marine life, windsurfing afross crystal blue waters or simply relaxing on the beach your days will be filled with plenty of simple pleasures and adventures and everything is Total All-Inclusive!

 

All meals with wine, beer and soft drinks are free of charge. Unlimited drinks & snacks throughout the day and night, bar is open day and night! All sports (tuition and equipment avalible), leisure activities and entertainment..

 

 

 

Sport:
Windsurfing – Snorkeling -Waterskiing –wakeboarding -Tennis-beach-volley –volleyball -mini-soccer- Kayaking -weight-training and cardio fitness room -Scuba diving -deep sea fishing-
Herseback riding – bike or mountain bikie – jet ski – golf.

 

 

 

Bar & Restaurants:

Le Madou bar-Poolside bar featuring a dance floor. The Flying Boat Bar-High energy, oceanside nightclub.Le Madou snack grill-High energy, oceanside nightclub. Le Belle Créole-Serving authentic creole cuisine prepared by our renowned local chef. Pays Melés-Featuring global flavors and Live Band-Club Med® Evening Entertainment

 

 

 

 

Swimming Pool:- A new 5,000+ sq ft. infinity swimming pool with water jets

 

 

 

 

 

 

Needless to say þá mun ég ekki blogga á næstunni og líklega er þetta mitt allra seinasta blogg í bili - ble ble og jíbbí kóla.


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 18:34:55 / nonni

heppinn..

týpískt- vika í the big day og ég er komnn med frunsu

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 01:37:04 / nonni

helvítis rökfræði út um eyrun á mér....rökfræðipróf á morgun!

Smá sýnishorn:

 

Allir konur  eru dauðlegar                                              Ekkert er betra en hamingjan

 Forseti bandaríkjanna er dauðlegur                         Hrútspungur er betra en ekkert 

_____________________                                         _______________________

Forseti bandaríkjanna er kona !                       Hrútspungur er betri en hamingjan !

 

Það halda allir að þeir hafa rosa góð rök fyrir máli sínu en staðreyndin er sú að það er hægt að réttlæta allt með rökum, það hefur sagan sýnt okkur!

  

Ég hugsa þess vegna er ég - Ég hugsa ekki þess vegna er ég ekki!

Hvað þurfa að vera mörg hár eftir á hausnum til að maður teljist sköllóttur?

Hvað þurfa margar kúlur að koma saman til að teljast sem hrúga?

 Þessi setning er röng !

 

og svona mætti lengi telja - will somebody kill me please!

kær kveðja

hr. prófastress

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 11:03:16 / nonni

Operation þjóðarbókhlaða, DAY 1....

  

Maður lærir mikið og margt á Þjóðarbókhlöðunni, afrakstur dagsins er :

 

 

  • Það eru til allt of mikið af grunnskólanemum á Íslandi
  • Það er ekki sniðugt að reyna að  laumu-prumpa  þegar maður er  með eyrnatappa í eyrunum
  • Það er virkilega heftandi að þurfa að halda fótunum sínum  meigin við borðið
  • Ef þú ferð að hrjóta í þá hendir fólk strokleðursbútum í þig 
  • Það ert vandræðaleg þögn inn  í litlum lyftum
  • Lífrænt gos er bara drullu gott
  • Prófessorar eru undantekningalaust í skrýtnum fötum
  • Stelpur sem að læra ómálaðar eru ekki lengur til !!
  • Ef einhver ræskir sig þá verður maður að bíða í 30 sek áður en maður ræskir sig sjálfur, annað er bara böggandi !
  • Fólk með headphones heldur virkilega að enginn heyri í tónlistinni nema þau sjálf!

End of Day 1


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 14:31:58 / nonni

- steik dagsins -

 

Hér sit ég

í friði og spekt

og geri ekki neitt.

Vorið er komið

og prófin reddast örugglega af sjálfu sér

 

Í BEINU sambandi við þetta "frumsamda" ljóð þá var ég að komast að því að prófalestur og víndrykkja fer einstaklega vel saman ;)

kv. létti gaurinn


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 15:10:39 / nonni

röfl dagsins: bensínstöðvar = sjálfskaparvíti !!

     

 Ég man aldrei  Pin-númer og þess vegna neyðist ég alltaf til að nota bensínstöðvar en ekki sjálfsafgreiðslustöðvar. En það er ekki alveg jafn þægilegt því eg get varla farið út á bensíntöð nema að fá massa samviskubit með í kaupæti.

Þetta samviskubit er ekki vagna hás bensínsverðs, eða látinna íraka heldur   finnst mér það alveg svaðalega aumingjalegt að láta einhvern  vinarlegan gamlan kall í slitinni úlpu  standa úti  í bylmingsstormi til að dæla bensíni á bílinn minn á  meðan ég sit inni í heitum bílnum og bora í nefið á mér.

Ok, ok,  ekki mikið vandamál, maður dælir þá bara sjálfur og vandamálið er leyst, gott og blessað. En málið er ekki svo einfalt!

 Ef ég dæli bara sjálfur (eins og ég geri nánast alltaf), Þá situr þessi sami vinarlegi gamli kall  á stól fyrir utan bensíntöðina og horfir á mig niðurlútum augum á meðan ég dæli og hugsar mér þegjandi þörfina fyrir að vera að  fyrir að vera að stela vinnunni af honum! Svo þegar ég geng fram hjá honum þá nánast heyri ég hann hugsa  :" jæja, nú er maður orðinn alveg gagnslaus, engar jólagjafir fyrir barnabörnin þessi jólin !"

 

Either way you lose !

Lexía dagsins : að nota sjálfsafgreiðslustöðvar og drullast til að muna Pin númer!     

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 16:56:09 / nonni

...þið segið það...

   

Allt er spennandi sem gerist á bakvið luktar dyr.

 - (Alfred Hitchcock, 1955)

 

Allt er spennandi sem gerist á bakvið luktar dyr, nema viðkomandi sé að læra frumspeki.

- (Jón Heiðar Gunnarsson, 2006)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 15:55:40 / nonni

páskaröfl

 

Innhaldslýsing: Sykur, kakósmjör, nýmjólkurduft, undanrennuduft, kakómaassi, lesitín, vanilla, kakóþurrefni, glúkósasýróp, hert jurtafeiti, kakóduft, rúsínur, lakkrískjarni, möndlur, apríkósukjarnar, heslihnetur, sterkja, maís, hafrar, hveiti, sítrónusýra, matarsalt, bindiefni E-414, sýtustillar E-510, ýruefni, invertasi, bragðefni, litarefni, E102, E104, E120, E124, E129, E131, E132, E133, E150, E153, E160a, E171, E172, glansefni (matarolía, blývax):

þessi viðbjóður = eitt stykki páskaegg.

En kraftur markaðsfræðinnar er magnaður, ég át tvö.

   


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 13:38:03 / nonni

Heimur batnandi fer....or is it múhaha (lesist með DR. Evil hreim)

 

  -  Jon Bon Jovi    -               - Lil Jon  -               -  bara einhver Jon-       -   Jon Nakamatsu-

  

Miðað við þjóðskrá í byrjun ársins 2005 þá eru 5538 einstaklingar á Íslandi sem bera nafnið Jón sem fyrsta eignarnafn.  Í dag bera 3,6% kvenna nafnið Guðrún og 3,8% karla nafnið Jón. Fyrir hundrað árum var sú tala u.þ.b. 16%. Tískan setur svip sinn á íslensk nöfn og með því minnkar tala gamalgróinna nafna. Alþjóðavæðingin hefur þau áhrif að erlendum nöfnum fjölgar og það má segja að það ríki nokkurs konar útlandadýrkun.

 

Vinsældir nafnanna Guðrún og Jón hafa minnkað u.þ.b 12% á síðastliðnum 100 árum sem gefur til kynna að Jónum og Guðrúnum fer  ört fækkandi og ný nöfn munu mjög fljótlega taka við sem vinsælustu nöfn okkar Íslendinga.

Eftirfarandi nöfn hafa verið leyfð á Íslandi upp á síðkastið og hugsanlega verður eitthvað af þessu að næstu þjóðarnöfnum íslendinga: Kvennmansnöfnin Víóletta, Pamela, Naomí, Pollý, Norma, Nicole, Vísa, Charlotte, Petrónella, Carmen að ógleymdri Mist Eik.  Karlmannsnöfnin: Abraham, Annas, Cýrus, Safír, Lars, Jack, Francis (já þetta er karlmannsnafn!), Fabrisíus, Ernestó, Dónald, Lambert,  Brúno og Bill.

 

 

Eins og maður gat verið fúll með það að vera bara enn einn Jóninn í endalausri röð af Jónum og séra Jónum, þá er gaman að segja frá því að ég er eini einstaklingurinn í öllum HEIMINUM sem að ber nafnið "Jón Heiðar Gunnarsson". Mér er farið að líða eins og deyjandi kynstofni og finnst það bara nokkuð cool að “representa” hugmyndaleysi og tilbreytingarleysi fyrri alda.

 

Kær kveðja   

Seinasti Geirfuglinn  (sem á að vera í prófalestri en ekki að skrifa tilganslausa pistla)

 

 

 

 

  

 

 

Mæli með áhugaverðr lesningu á : http://www.rettarheimild.is/mannanofn

 

 

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 13:47:36 / nonni

Tvífarar dagsins

Friedrich Nietzsche :

 

 

 Heiner Brand:

   

 

I REST MY CASE

-JHG-


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 14:35:33 / nonni

pirripúúpúu dagsins...

Djöfull fer það alltaf jafn ógeðlsega mikið í pirrunar á mér að þessi GAUR heiti SANDY!!! Whats up with that?

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 11:25:06 / nonni

Meðmæli dagsins...Highly reccomended...modern klassík

Ég var búinn að gleyma hvað þessi mynd er endalaust mikil snilld - Bill Murray upp á sitt allra allra besta.  Langt síðan að hef hef bókstaflega grenjað úr hlátri, algjört MUST SEE FYRIR ALLA - Ef þú hefur ekki séð hana drífðu þig þá strax út á leigu og ef þú ert búin að sjá hana áður horfðu þá á hana aftur, strax í dag. P.S. ekki láta coverið fæla þig frá!


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 13:02:08 / nonni

haha og pæling dagsins

Tekið af textavarpinu: Áfengiseitrun eftir "skotkeppni"      
"Skothelgi á Barnum. Á laugardag verður brjáluð skotkeppni, tíu þúsund kall fyrir fyrsta sæti, þátttökugjald 1.000  krónur". Þannig er auglýsing frá veitingastaðnum Barnum á Sauðárkróki sem birtist í auglýsingablaðinuSjónhorninu í síðustu viku.           
                                       
Sá sem sigraði í keppninni torgaði 35staupum af sterkum drykk, samkvæmtheimildum fréttastofu Útvarps. Nokkrir misstu meðvitund og tveir voru fluttirá Heilbrigðisstofnun Skagfirðinga með áfengiseitrun. Sömu heimildir herma aðnokkrir þátttakenda hafi verið undirtvítugu og a.m.k. einn undir lögaldri.Lögreglan á Sauðárkróki segir að máliðsé í rannsókn og vill ekki tjá sig meðan svo er. 

---

Getur einhver sagt mér af hverju ég fyllist ákveðnu þjóðarstolti þegar að ég les þessa frétt??

Ef þessi frétt hefði verið um bandaríkjamenn í Suðurríkjunum þá hefði ég strax stimplað viðkomandi sem Rednecks. Eru til íslenskir "rauðhálsar" eða eru þeir bara stolt lands og þjóðar sem viðhalda gömlum íslenskum víkinga-hefðum? Teljast þessir menn sem rauðhálsar eða sem afreksmenn þjóðarinnar, svona eins og strákarnir okkar?


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 12:51:20 / nonni

...röfl dagsins....(örblogg)

...ég er frekar efins um efahyggjuna...


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 15:50:24 / nonni

Nokkrir punktar um allt og aðalega ekkert

   

  • Hvernig veistu að þú sért að læra nördafag ??  Jú þegar að gaurinn við hliðinna á þér er að stelast til að lesa bók um Warhammer í miðri kennslustund!! Eðlilegt fólk stelst á msn, en nei, þessi gaur stelst i  að lesa um Warhammer kalla!!! Auglýsingar um Dæluna eiga hér vel við.
  • Fyrst að helgin er gengin í garð þá vildi ég minna fólk á einn besta og magnaðasta tölvuleik allra tíma sem að hefur verið að gera allt gjörsamlega vitlaust hér á síðunni.  Þessi leikur var valinn leikur ársins 3 ár í röð í Þýskalandi og er á listum yfir bestu leiki allra tíma hjá tölvublöðum um allan heim - til að spila hann klikkið hér:  http://www.markus-baur.com/memory/memory.html
  • Ég ætlaði að downloada nýju ensku útgáfunni Congratulation með Sylvia Night áðan en ég fann bara lagið Sylvia - night of the guitar. Í örvæntingu minni þá "niðurhalaði" ég þessu lagi og til að fyrirbyggja að fleiri lendi í þessu óhappi þá er það vægast sagt ekki skemmtilegt.
  • Gamlar hetjur:  Veit einhver hvað Sigurður H. Richter er að gera í dag? Hvað ætli að Kristinn Björnsson sé niðurkominn? En Tommi Tómatur sem að var alltaf í Hagkaup?
  • Hvort er verra, klámmyndir eða rómantískar gamanmyndir? Í klámmyndum er búin til einhver fáránleg kvenn-ímynd sem hugsar bara um kynlíf og er með ofur-ýktan líkama. Í rómantískum gamanmyndum er búin til einhver fáranlega karl-ímynd sem er eingöngu djúp vitsmuna- og tilfinningavera og hugsar nánast aldrei um kynlíf. Báðar tegundir af bíómyndum veita ungum drengjum/skúlkum gríðarlegar ranghugmyndir um hitt kynið. Er þetta jafn slæmt eða ekki? Er þetta allt spurning um orsök og afleiðingu? Þarf maður ekki að vera tæpur á geði  fyrir, til að þetta hafi  slæm áhrif á mann? Við treystum fólki sem spilar tölvuleikinn Doom fyrir því að fara ekki út með Uzi og skjóta alla! Erum við hugsanlega að oftúlka og gera lítið úr mannlegri skynsemi til að vega og meta hlutina og er þetta þá kanski allt bara saklaus skemmtun, hver veit?
  • Ef maður er það sem að maður borðar! - var maður þá það sem maður skítur?
  • Skv. auglýsingum Húsasmiðjunnar þá á að bera viðarvörn á alla veggi sem standa annaðhvort á móti sól eða vindátt. Mér er spurn: Eru til útiveggir sem standa ekki á móti sól eða vindátt? Af hverju ekki bara að tala um útivegggi?? Ok,ok þetta er mikið röfl en einhverra hluta vegna þá fer þetta alltaf jafn óendanlega mikið í pirrunar á mér. 

-JHG-

 

 

 

 

 

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
MYNDIR...